Nýtt ár hjá Unghjónaklúbbnum. Upplýsingar
Þá er að hefjast nýtt starfsár hjá Unghjónaklúbbnum, hefur hann verið tekinn til nafnaskoðunar
–færður til nútímans og er ætlunin að auka fjörið í klúbbnum :)
Ný stjórn hefur tekið við taumunum og í þessu bloggi ætlum við að segja frá hvað er á döfinni og hvernig klúbburinn “virkar”.
Starfsárið okkar hefst í febrúar með aðalfundi
(í stað nóvember eins og áður var).
Þar sem þessi breyting var samþykkt á aðalfundi okkar í nóvember s.l. þá verður ekki haldinn aðalfundur í febrúar 2012 svo nýja starfsárið er í raun hafið.
Árgjaldið hefur verið lækkað í 6.000.- (í stað 9.000.-).
Nú hættum við að millifæra árgjaldið og núna stofnum við greiðsluseðla í heimabönkunum ykkar svo það er lítið mál að greiða árgjaldið fljótt og örugglega :)
(engir vextir koma á seðilinn hvenær sem hann er greiddur)
Klúbburinn er með síðu á Facebook sem gildir félagar fá aðgang að. Þar nýtum við tæknina og miðlum okkar helstu upplýsingum. En einnig berum við auglýsingar í hús um viðburði okkar.
Einnig hefur klúbburinn heimasíðuna www.unghjonaklubbur.bloggar.is en þar eru meira upplýsingar fyrir þá sem vilja kynna sér klúbbinn.
Dagskrá klúbbsins fyrir árið 2012-2013 lítur svona út:
Apríl/Maí: hótelferð (árshátíðin okkar).
Júní: útilega.
Ágúst: fjölskyldudagur.
Október: óvissuferð.
Desember: hátíðarskemmtun.
Hátíðarskemmtunin mun verða boðsviðburður þar sem félagar geta boðið gestum með sér.
Einnig var ákveðið á aðalfundinum að breyta lögum klúbbsins þannig að núnasitja pör í stjórn ekki einstaklingar.
Stjórnina skipa:
Petra Rós formaður 869-5570 og Unnar 863-4480,
Hildur gjaldkeri 696-1669 og Bergvin ,
Gunna Stína ritari 840-9350 og Björn Steinar 840-9356,
Sara meðstjórnandi 699-2591og Kobbi 697-5137.
Netfang klúbbsins er unghjon@gmail.com
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða hafið áhuga á að ganga í klúbbinn. Sendið þá tölvupóst á tölvupóstfangið okkar eða hringið í einhvern stjórnarmeðlim. Þetta er flottur vettvangur til að kynnast fólki og hafa gaman :)
Engin athugasemd


